Aðalfundur Chelsea-klúbbsins á Íslandi 2026 fer fram í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 30. maí n.k. og hefst hann kl. 13:00.
Auk lögboðinnar dagskrár aðalfundar félagsins verður m.a. dregið í vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins, einnig verður boðið upp á pallborðsumræður í lok fundar.
Léttar veitingar verða bornar fram í boði Chelsea-klúbbsins.
Til að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 28. maí n.k.
Athugið að eingöngu þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald til klúbbsins fyrir aðalfund er heimil þátttaka í fundinum.
Í 11. grein laga Chelsea-klúbbsins segir m.a.:
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
a) Kosning fundarstjóra.
b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs.
c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning formanns.
g) Kosning sjö stjórnarmanna.
h) Kosning tveggja endurskoðenda.
i) Kosning í laganefnd (Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar).
j) Önnur mál:
- Afhending gullmerkis Chelsea-klúbbsins.
- Dregið í vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins.
- Happdrætti á meðal fundargesta.
- Orðið laust.
- Pallborðsumræður, þátttakendur eru:
Fundi slitið að loknum pallborðsumræðum.
Að fundi loknum verður svo hægt að fylgjast með úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í beinni útsendingu frá Budapest.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að gista á Grand Hótel aðalfundarhelgina þá eru eftirfarandi skilaboð frá Grand Hótel:
Einstaklingsherbergi með útsýni og morgunverði: Kr. 26.300.-
Tveggja manna herbergi með útsýni og morgunverði: Kr. 30.300.-
Hægt er að bóka á netfanginu res.grand@hotelreykjavik.is
Stjórn Chelsea-klúbbsins á Íslandi.
P.S. Minnum á vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins: https://chelsea.is/vorhappdraetti-chelsea-klubbsins-a-islandi/

















