Söfnun fyrir Kolfinnu Rán

31. maí. 2026

Stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi vill vekja athygli á söfnun fyrir 13 ára stuðningskonu Chelsea, Kolfinnu Rán, sem nú glímir við krabbamein.
Chelsea klúbburinn á Íslandi leggur málefninu lið með 100.000 kr. framlagi úr Minningar- og styrktarsjóði klúbbsins.

Chelsea klúbburinn vill hvetja félagsmenn og aðra sem vilja leggja málefninu lið á þátttöku í styrktarlottói sem Hólmfríður Magnúsdóttir skipuleggur, vinningagjöfum eða með beinum fjárframlögum á styrktarreikning Kolfinnu Ránar.

Styrktarreikningur Kolfinnu Ránar:
Reikningsnúmer: 0511-14-120390
Kennitala: 200984-2859

Meðfylgjandi er færsla Hólmfríðar:
Kolfinna Rán er 13 ára gömul og greindist fyrst með krabbamein aðeins 2 og hálfs árs. Þá gekk hún í gegnum 6 mánaða lyfjameðferð og yfir 30 geislameðferðir, þar sem hún þurfti að vera svæfð í hvert skipti. Hún sigraði það — enda algjör nagli.

Í lok júlí á síðasta ári greindist Kolfinna aftur. Í ágúst hóf hún 8 lyfjagjafir, flaug síðan til Svíþjóðar í desember og gekkst undir mikla aðgerð þar sem stór hluti af lærleggnum upp í mjaðmakúlu var fjarlægður og íhlutur settur í staðinn.
Að auki þurfti að fjarlægja tvo af stóru vöðvunum í lærinu. Eftir aðgerðina hefur hún klárað 10 lyfjagjafir til viðbótar.
Ný óvissa tók svo við og í vikunni gekkst hún undir aðgerð þar sem fjarlægður var blettur úr lunganu og sepi þar við hlið.
Kolfinna hefur sýnt ótrúlegan styrk og lætur ekkert stöðva sig. Hún er mín uppáhalds stelpa — skapið, krafturinn og baráttan í henni er ólýsanleg.
Mig langar að safna í framtíðarsjóð fyrir Kolfinnu með styrktarlottói sem hefst í næstu viku.
Því langar mig að athuga hvort fleiri styrktaraðilar, fyrirtæki eða íþróttafólk vilji sýna Kolfinnu stuðning með því að gefa vinning.
Ef þú, þitt fyrirtæki eða íþróttafólk viljið gefa vinning má hafa samband við mig til 1. júní:
📩 holmfridurmagnus84@gmail.com

📞 898-5903

Joii
EiríkssonKjötsmiðjan
American Bar
Car RentalHársnyrtistofan