Feðgar í ferð á Brúna

10. maí. 2026

Samþykkt var nýverið af stjórn Chelsea-klúbbsins að styrkja feðgana Ágúst Líndal Ágústsson og Ágúst Líndal yngri til farar á leik með Chelsea Football Club en þeir feðgar eru miklir stuðningsmenn Chelsea.
Ágúst yngri hefur átt við mjög erfið veikindi að stríða undanfarin misseri.
Það var stjórn Chelsea-klúbbsins auðveld ákvörðun að styrkja þá feðga með framlagi úr Minningar- & styrktarsjóði Chelsea-klúbbsins til að fara á leik með Chelsea á Stamford Bridge, eitthvað sem þá hafði dreymt um að upplifa saman, og varð leikur Chelsea vs Nottingham Forest þann 4. maí sl. fyrir valinu og þó svo að bæði leikurinn og þá ekki síður úrslitin hafi valdið vonbrigðum nutu þeir feðgar dvalarinnar í London engu að síður.


Feðgarnir á Stamford Bridge

Við sendum þeim feðgum baráttukveðjur á þessum erfiðu tímum í lífi þeirra og óskum Ágústi yngri góðs bata.
Þá þökkum við þeim fóstbræðrum Braga Hinriki Magnússyni og Þór Bæring Ólafssyni fyrir þeirra aðstoð.

Joii
EiríkssonKjötsmiðjan
American Bar
Car RentalHársnyrtistofan