Chelsea klúbburinn og Minigarðurinn í samstarf
Chelsea klúbburinn og Minigarðurinn hafa undirritað samstarfssamning.
Stefnt er að góðu samstarfi um leikjasýningar, viðburði og stemningu í kringum leiki Chelsea FC á leiktímabilinu.
Minigarðurinn er heimavöllur Chelsea klúbbsins og býður Minigarðurinn upp á sýningar á leikjum Chelsea FC.
Klúbburinn stefnir að því að standa fyrir skipulögðum viðburðum í Minigarðinum í tengslum við valda leiki Chelsea FC og öðru starfi klúbbsins.
Félagar í Chelsea klúbbnum fá 32% afslátt af listaverði bjórs á meðan samningurinn er í gildi og geta félagar og aðrir gengið að boltatilboði á mat.
Þá geta félagar í Chelsea klúbbnum nú bókað borð á Minigarðinum í tengslum við Chelsea leiki.
Minigarðurinn býður upp á glæsilega og fjölskylduvæna aðstöðu og fjölbreyttan mat við flestra hæfi.
Chelsea klúbburinn hvetur félaga í Chelsea klúbbnum og aðra stuðningsmenn, -konur og -kvár til að fjölmenna á Minigarðinn!

Frá vinstri til hægri, Slava Titov stjórnarmaður í Chelsea klúbbnum, Vilhelm Einarsson framkvæmdastjóri Minigarðsins og Starkaður Arnarson formaður Chelsea klúbbsins handsala samninginn að undirritun lokinni


















