Vakin er athygli á að Chelsea Football Club lokar á endurnýjanir og nýskráningar fyrir þá sem vilja njóta forkaupsréttar á miðum fyrir alla supporters klúbba eins og okkar miðvikudaginn 30. september n.k.
Það tekur tíma að klára skráningu í kerfinu hjá þeim í London og því er ekki hægt að ábyrgjast að greiðslur árgjalda og skráningar sem berast okkur eftir þriðjudaginn 29. september n.k. nái tímanlega í gegn.
Ef þú átt eftir að skrá þig í klúbbinn þá er hægt að gera það hér: https://chelsea.is/gerastfelagi/
Ef þú varst í klúbbnum í fyrra og átt eftir að endurnýja þá má finna upplýsingar um árgjöld og upplýsingar um bankareikning og kennitölu Chelsea-klúbbsins til að leggja inn fyrir þeim á sömu síðu (https://chelsea.is/gerastfelagi/).
Ef þú ert óviss hvort þú varst búin/-n þá má finna félagatalið hér, ef þú ert ekki þar þá áttu það líklega eftir: https://chelsea.is/felagatal/
Stjórnin.


















