Kæru félagar,
Öll þau sem skrá sig í Chelsea klúbbinn á Íslandi og ganga frá greiðslu árgjalds fyrir hádegi 30. júlí nk. munu tryggja sér 5 loyalty punkta hjá Chelsea FC, ef þú átt það eftir þá getur þú gert það hér: https://chelsea.is/gerastfelagi/
Öll sem skrá sig í Chelsea klúbbinn á Íslandi verða félagar hjá Chelsea FC rétt eins og undanfarin ár, enda er Chelsea klúbburinn á Íslandi „Official Supporters Club“ og þannig viðurkenndur hluti af Chelsea FC.
Það má finna félagatal klúbbsins á https://chelsea.is/felagatal/ og ef nafnið þitt er ekki að finna þar þá endilega skráðu þig eða hafðu samband við okkur á chelsea@chelsea.is ef þú telur þig hafa gengið frá greiðslu.

Breytingar á framkvæmd miðapantana á heimaleiki Chelsea á Stamford Bridge, nú beint af Chelsea FC
Chelsea FC hefur nú gefið út breyttar reglur um aðgengi félaga að miðum á heimaleiki Chelsea á Stamford Bridge, þetta gildir fyrir alla félaga í öllum Official Supporters Clubs víðsvegar um heiminn.
Miðar á heimaleiki Chelsea munu nú verða pantaðir af skráðum félagsmanni, beint af Chelsea FC en ekki í gegnum Chelsea klúbbinn á Íslandi eins og áður hefur verið.
Þau sem hafa gengið frá greiðslu félagsgjalda hjá Chelsea klúbbnum á Íslandi munu geta óskað eftir miðum í þar til gerðu appi hjá Chelsea FC.
Hægt verður að panta miða á fyrsta heimaleik Chelsea næsta mánudag
Næstkomandi mánudag kl. 11:00 (12:00 að breskum tíma) þann 20. júlí nk. verður hægt að óska eftir miðum á fyrsta heimaleik Chelsea gegn Brighton, 30. ágúst nk. til fimmtudagsins 23. júlí kl. 9:00 (10:00 að morgni að breskum tíma).
Miðar á útileiki Chelsea munu fara í gegnum Chelsea klúbbinn á Íslandi eins og undanfarin ár, nánar um það síðar.
Chelsea FC hefur einnig kynnt okkur að fjöldi miða fyrir skráða félaga muni ekki fara yfir 8 miða á tímabilinu en þetta er ekki eitthvað sem ætti að há félögum í klúbbnum og gildir þetta einnig fyrir alla félaga í öllum Official Supporters Clubs víðsvegar um heiminn.
Loyalty punktar í boði til 30. júlí
Eins og fyrr segir munu þau sem skrá sig í klúbbinn fyrir hádegi 30. júlí nk. tryggja sér 5 loyalty punkta hjá Chelsea FC.
Vöntun á loyalty punktum getur komið í veg fyrir að skráðir félagsmenn geti fengið miða á leiki sem Chelsea FC flokka sem loyalty punkta leiki.
Þetta eru gjarnan leikir á móti andstæðingum eins og Arsenal, Manchester City, Manchester United, Liverpool og fleiri liðum en sem stendur hefur Chelsea FC ekki gefið út hvaða leikir verða loyalty punkta leikir.
CFC+
Öll sem hafa skráð sig í True Blue+ og Junior aðild munu sjálfkrafa hafa aðgang að CFC+ sem er ný þjónusta hjá Chelsea FC en m.a. munu þau hafa aðgang að öllum leikjum Chelsea á undirbúningstímabilinu í Chelsea appinu.
Þau sem hafa ekki valið True Blue+ eða Junior en hafa áhuga CFC+ geta keypt aðgang að CFC+ á vef Chelsea FC hér: https://memberships.chelseafc.com/en/subscriptions
Þá hefur Chelsea FC gefið það út að eftir 30. september nk. verður ekki hægt að bæta við nýjum félagsmönnum en þetta var hægt nokkuð langt inn í desember í fyrra.
Meistarakveðja,
Stjórnin

















