Aðalfundur Chelsea klúbbsins 2026

21. jún. 2026

Aðalfundur Chelsea-klúbbsins fór fram á Grand Hótel Reykjavik laugardaginn 30. maí 2026 og var vel sóttur að venju en milli 50 og 60 manns sóttu fundinn.

Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsárið hafi að mestu verið með hefðbundnu sniði, mikill tími stjórnarmanna fór í að annast endurnýjanir og nýskráningar félagsmanna, efla sambandið við samstarfs- og styrktaraðila og ekki síst við móðurfélagið, Chelsea Football Club í London.
Fjöldi félagsmanna fækkaði örlítið á milli ára og töldust félagsmenn vera 402 í lok starfsársins en voru 428 árið áður.

Á fundinum voru samþykktar nokkrar breytingar á lögum klúbbsins og búið er að uppfæra lög klúbbsins á vefnum, sjá nánar á https://chelsea.is/loeg-og-reglur-felagsins/.

Gjaldkeri klúbbsins kynnti ársreikning klúbbsins og var hann samþykktur einróma af fundarmönnum, engar athugasemdir verið gerðar, hvorki af enduskoðendum klúbbsins né af hálfu móðurfélagsins.
Lítils háttar hagnaður var af rekstri klúbbsins á stafsárinu og tekjur vs útgjöld í góðu jafnvægi.

Karl Hillers, sem gegnt hefur formennsku klúbbsins undanfarin 27 ár, ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Þá hafði Kristján Þór Árnason Helguson áður sagt sig frá stjórnarsetu á árinu vegna fjölskylduaðstæðna.
Stjórn klúbbsins þakkar þeim báðum kærlega fyrir myndarlegt og óeigingjarnt framlag þeirra til starfsins.

Einn var í framboði til formanns en það var Starkaður Örn Arnarson, sem gegnt hefur varaformennsku undanfarin ár og var hann einróma kjörinn nýr formaður klúbbsins.
Aðrir stjórnarmenn voru áfram í framboði en það voru þeir Freysteinn Guðmundur Jóhannsson, Helgi Rúnar Magnússon, Ómar Freyr Sævarsson, Pétur Pétursson og Stefán Marteinn Ólafsson.
Auk þeirra voru þrír nýir aðilar í framboði til stjórnar, það voru þeir Slava Titov, Snorri Guðmundsson og Trausti Már Falkvard.
Allir sem voru í framboði voru kosnir til stjórnarsetu og komu engin ný framboð fram á fundinum.

Nýja stjórn klúbbsins mynda því: 
Starkaður Örn Arnarson (formaður), Freysteinn Guðmundur Jóhannsson, Stefán Marteinn Ólafsson, Pétur Pétursson, Helgi Rúnar Magnússon, Ómar Freyr Sævarsson, Slava Titov, Snorri Guðmundsson og Trausti Már Falkvard.
Endurskoðendur klúbbsins voru kjörnir Sölvi Sveinsson og Karl Emil Gunnarsson en Þórður Óskarsson bauð sig ekki áfram til starfanna.
Þá var kjörin óbreytt laganefnd þeir Birgir Ottó Hillers, Friðrik Þorbjörnsson og Helgi Rúnar Magnússon, formaður þar sem þeir voru allir endurkjörnir.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar 2. júní sl. skipti stjórn með sér verkum og hafa upplýsingar um stjórn klúbbsins verið uppfærðar á vef klúbbsins https://chelsea.is/stjorn-klubbsins/.


Starkaður Örn, nýr formaður klúbbsins þakkar Karli Hillers fyrir starfið, undir dyggu lófataki allra fundargesta á hjartfólgnu augnabliki.

Enginn nýr heiðursfélagi var heiðraður en heiðursfélagi Eiður Smári Guðjohnsen fékk gullmerki félagsins afhent.

Starkaður Örn, nýr formaður klúbbsins nælir gullmerkinu í Eið Smára.

Eftir að hefðbundnum aðalfundarstörfum lauk var boðið upp á glæsilegar veitingar í boði klúbbsins sem mæltust vel fyrir.

Í lok fundar var boðið upp á þá nýbreytni að halda pallborðsumræður um Chelsea og voru þær líflegar og afar vel heppnaðar.


Þeir Eiður Smári, Halldór Árnason og Willum Þór Þórsson tóku þátt í þeim undir dyggri stjórn Jóhanns Más Helgasonar.

Eftir að pallborðsumræðum lauk var horft á úrslitaleik í meistaradeildinni.

Joii
EiríkssonKjötsmiðjan
American Bar
Car RentalHársnyrtistofan