Félagsfundar laugardaginn 10. júní n.k. í Ölveri

Ágætu félagar.

Stjórn Chelsea-klúbbsins boðar hér með til félagsfundar laugardaginn 10. júní n.k. í Ölveri og hefst hann kl. 17:00.

Dagskrá:

Árgjöld, greiðslufyrirkomulag o.fl.

Tippleikur Chelsea.is, úrslit kunngjörð og verðlaun afhent.

Dregið í vorhappdrætti Chelsea klúbbsins.

Önnur mál.

Einn heppinn fundargestur hlýtur smáglaðning fyrir það eitt að mæta á fundinn, verður það þú?

Og fyrir áhugasama má geta þess að leikur Inter Milan vs Manchester City í úrslitum Meistaradeildar Evrópu, sem fer fram í Istanbul, verður að sjálfsögðu sýndur beint í Ölveri og hefst hann kl. 19:00.

Meistarakveðja,

Stjórnin.

Upp