Dregið í vorhappdrætti Chelsea klúbbsins 2023

Dregið var í vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins á Íslandi á félagsfundi laugardaginn 10. maí og skiptu 22 félagsmenn með sér 28 vinningum að þessu sinni.

Búið er að hafa samband við þá vinningshafa er ekki voru viðstaddir dráttinn og ráðstafanir gerðar til að koma vinningum til skila til viðkomandi.

Þátttaka var með miklum ágætum og færum við þátttakendum sem og gefendum vinninga bestu þakkir fyrir þeirra framlag, þá óskum við jafnframt vinningshöfum til hamingju og megi þeir njóta.

Meistarakveðja,

Stjórnin.

Upp