Chelsea vs Aston Villa, FA Cup

Chelsea mætir Aston Villa í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar (FA Cup) og fer leikur liðanna fram á Stamford Bridge föstudagskvöldið 26. janúar n.k.

Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til og með sunnudagsins 14. janúar.

Verð miða á þennan leik eru í lægri kantinum, GBP 100.- í Westview (GBP 67.- í Restricted view), GBP 38.- í aðrar stúkur á Stamford Bridge (GBP 33.- í Restricted view í East Upper, GBP 19.- í Restricted view í Matthew Harding Lower).

Miðaverð fyrir eldri borgara (65 ára og eldri) og börn og unglinga (19 ára og yngri) er GBP 19.-, þó ekki í Westview.

5 Loyalty punktar í boði fyrir þá er kaupa miða á þennan leik.

Einungis er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is.

Meistarakveðja,

Stjórnin.

Upp