Carabao Cup, undanúrslit í janúar 2024

Chelsea mætir Middlesbrough í undanúrslitum Carabao Cup en leikið er bæði heima og að heiman í undanúrslitunum.

Fyrri leikur liðanna fram á Riverside Stadium í Middlesbrough 9. eða 10. janúar 2024 en seinni leikur liðanna fer fram á Stamford Bridge 23. eða 24. janúar 2024, við flytjum ykkur nánari fréttir af leikdögum og leiktímum þegar þær berast frá höfuðstöðvunum og þá jafnframt einnig upplýsingar um miðaverð.

Chelsea Football Club hefur ákveðið að Loyalty Points reglan skuli gilda um báða þessa leiki og þurfa okkar félagsmenn að ráða yfir 10 Loyalty punktum til að vera gjaldgengir í forkaupsrétti á miðum á leikina.

Forkaupsréttur okkar á miðum á þessa leiki er skammur eða til og með þriðjudagsins 26. desember n.k.

Eingöngu er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is

Nánari upplýsingar má fá í síma 864-6205.

Upp