Chelsea vs AFC Wimbledon

Chelsea mætir AFC Wimbledon í annarri umferð Carabao Cup og fer leikur liðanna fram á Stamford Bridge miðvikudagskvöldið 30. ágúst n.k., forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til og með sunnudagsins 13. ágúst.

Grunnverð miða er GBP 38.- fyrir fullorðna, GBP 19.- fyrir börn, unglinga og ellilífeyrisþega (65 ára og eldri).

Einungis er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is.

Miðar í Westview og Shed Stand eru ekki í boði.

Leikur liðanna verður ekki sýndur í beinni útsendingu enskra sjónvarpsstöðva.

Meistarakveðja.

Stjórnin.

Upp