Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Ísland 2013

grandhotelAðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi verður haldinn að Háteigi B á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 19. október n.k. og hefst fundurinn kl. 12:30.
Dagskrá:

a) Kosning fundarstjóra. 
b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs.
c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs.
d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
e) Lagabreytingar.
f) Kosning formanns.
g) Kosning sjö stjórnarmanna.
h) Kosning tveggja endurskoðenda.
i) Kosning í laganefnd.
   -Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar.
j) Önnur mál:

  • Afhjúpun hátíðarfána félagsins.
  • Tilnefning heiðursfélaga kunngjörð.
  • Dregið í happdrætti Chelsea klúbbsins.
  • Kosið um íslenskan Chelsea borða á Stamford Bridge.
  • Uppboð á áritaðri Chelsea keppnistreyju.
  • Orðið laust!
  • Fundi slitið.

Að fundi loknum verður svo fylgst með leik Chelsea og Cardiff City í Úrvalsdeildinni í beinni útsendingu frá Stamford Bridge en leikur liðanna hefst kl. 14:00. Og að sjálfsögðu mun sparksérfræðingur Chelsea klúbbsins, Willum Þór Þórsson, mæta á staðinn og spá í leikinn ásamt fundarmönnum!

Líkt og áður verða veitingar í boði Chelsea klúbbsins á staðnum og til  að auðvelda okkur sem og starfsmönnum Grand Hótels Reykjavíkur að áætla umfang veitinga viljum við biðja þá félagsmenn er hyggja á mætingu að senda okkur tölvupóst þar um á chelsea@chelsea.is í síðasta lagi fimmtudaginn 17. október n.k.

Með meistarakveðju, Stjórnin.

 
 
Upp