Vinir okkar í Blákastinu hafa komið saman og hlaðið í nýjan þátt sem er skylduhlustun hjá fylgisfólki Chelsea.
Þátturinn heitir „Vonbrigðatímabil gert upp“ og ætti engan að undra eftir alveg hrikalegt tímabil!
Í þessum þætti fá Blákastmenn góðan gest í Halldóri Árnasyni, sem gerir upp tímabilið 2025/26 með þeim.
Í þættinum er verðlaunaafhending og farið yfir hvaða væntingar þeir hafa til Xabi Alonso.
Hlustið endilega á þennan fína þátt!
Hægt er að hlusta á hann í öllum helstu hlaðvarpsveitum en einnig hér á síðunni.
Góða helgi kæru félagar!
Áfram Chelsea!

















