Horfinn er á braut góður drengur og félagi, Smári Kristjánsson andaðist á Selfossi þann 19. apríl síðastliðinn eftir stutt en erfið veikindi og fór útför hans fram í kyrrþey frá Selfosskirkju þriðjudaginn 5. maí.
Smári var mikill áhugamaður um knattspyrnu, lék á sínum yngri árum með KR og UMF Selfoss, þá var hann eldheitur stuðningsmaður Chelsea Football Club, félagi í Chelsea-klúbbnum á Íslandi í hartnær þrjá áratugi.
Smári reyndist sannur félagi, styrkti Chelsea-klúbbinn með ýmsu móti í gegnum árin, sérstaklega er hann gegndi stöðu umboðsmanns VÍS á Suðurlandi en fyrir hans tilstilli var VÍS einn af bakhjörlum Chelsea-klúbbsins um árabil.

Smári og Orri Ýrar (guðfaðir www.chelsea.is) fyrir utan gamla Wembley leikvanginn 1998.
Ekki verður komist hjá því að minnast tónlistarmannsins sem bjó í Smára, einn af bestu bassaleikurum sinnar tíðar hér á landi, gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Mánum frá Selfossi auk fleiri hljómsveita á ferli sínum.

Smári ásamt félögum sínum í Mánum (Bassi heitinn, Gösli, Labbi og Gummi Ben).
Ein minnistæðasta stundin á tónlistarferli Smára og félaga hans í Mánum var er þeir hituðu upp ásamt nokkrum „Mánabörnum“ fyrir þá heimsfrægu rokksveit Deep Purple á tónleikum í Laugardalshöll miðvikudagskvöld eitt í júnímánuði 2004 en eins og sagði í umsögnum fjölmiðla um tónleikana daginn eftir að þá voru Mánar hreint út sagt frábærir og stálu kvöldinu, ekki skemmdi fyrir okkur í Chelsea-fjölskyldunni sem vorum á staðnum að bassaleikari Mána skartaði líka þessari flottu Chelsea-derhúfu á meðan að hann plokkaði bassann.

Bassinn plokkaður í Laugardalshöll
Við kveðjum Smára með miklum söknuði og sendum fjölskyldu hans og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hvíl í friði kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt og allt.
F.h. félaga í Chelsea-klúbbnum á Íslandi,
Karl H Hillers.

















