Vorhappdrætti Chelsea klúbbsins á Íslandi

1. maí. 2026

Vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins er farið af stað!

Það er sama gamla góða fyrirkomulagið og áður, fyrir hvern fimm hundruðkall sem þú leggur inn á reikning Chelsea-klúbbsins færðu nafn þitt skráð einu sinni í happdrættispottinn góða.
Að sjálfsögðu er þér heimilt að reiða eins marga fimm hundruðkalla af hendi og þér lystir.
Þú færð nafnið þitt skráð einu sinni ef þú greiðir kr. 500.-, fimm sinnum ef þú greiðir kr. 2500.-, tíu sinnum ef þú greiðir kr. 5.000.- o.s.frv.
Reikningsnúmer klúbbsins er 0133-15-200166, kt. 690802-3840, vinsamlegast tilgreinið HAPPDRÆTTI í skýring greiðslu/tilvísun og kennitölu ykkar í GREIÐANDI.

Margir skemmtilegir vinningar í boði en á meðal gefenda vinninga má nefna:
Bræðurnir Ormsson
Chelsea-klúbburinn á Íslandi (bland í poka)
Grand Hótel Reykjavík
Hamborgarabúllan
JK vörur
Keiluhöllin
Lemon
Minigarðurinn
Rikki Chan
Shake & Pizza
Toyota (bland í poka)
Ofl.

Þetta er ekki flókið, miði er möguleiki, allir að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt!
Dregið verður í happdrættinu á aðalfundi Chelsea-klúbbsins sem verður haldinn laugardaginn 30. maí n.k. á Grand Hótel Reykjavík.

Joii
EiríkssonKjötsmiðjan
American Bar
Car RentalHársnyrtistofan