Vorhappdrætti Chelsea klúbbsins 2025

Þá fer að koma að því, vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins á Íslandi er handan við hornið, sama gamla góða fyrirkomulagið, fyrir hvern fimm hundruðkall sem þú leggur inn á reikning Chelsea-klúbbsins færðu nafn þitt skráð einu sinni í happdrættispottinn góða en að sjálfsögðu er þér heimilt að reiða eins marga fimm hundruðkalla af hendi og þér lystir, t.d. færðu nafnið þitt skráð einu sinni ef þú greiðir kr. 500.-, fimm sinnum ef þú greiðir kr. 2500.-, tíu sinnum ef þú greiðir kr. 5.000.- o.s.frv.

Reikningsnúmer klúbbsins er 0133-15-200166, kt. 690802-3840, vinsamlegast tilgreinið HAPPDRÆTTI í skýring greiðslu/tilvísun og kennitölu ykkar í GREIÐANDI.

Margir skemmtilegir vinningar í boði en á meðal gefenda vinninga má nefna:

  • American Bar
  • Chelsea-klúbburinn á Íslandi
  • Fiskbúðin Hafberg
  • Grand Hótel Reykjavík
  • Hamborgarabúllan
  • Keiluhöllin
  • Rikki Chan
  • Shake & Pizza
  • Tango-Travel

Gefendum mun fjölga eftir því sem nær dregur.

Nánari skrá yfir gefendur vinninga verður svo kynnt af og til fram að drætti en dregið verður í happdrættinu á félagsfundi sem væntanlega verður haldinn á Ölveri seinni part mánaðarins.

Upplýsingar varðandi fundarefni og fundartíma verða kynntar síðar.

Ekki flókið, allir að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt!

Meistarakveðja,

Stjórnin

Upp