Ágætu félagar!
Það er komið vor og vorhappdrætti Chelsea-klúbbsins á Íslandi að bresta á, sama gamla góða fyrirkomulagið, fyrir hvern fimm hundruð kall sem þú leggur inn á reikning Chelsea-klúbbsins færðu nafn þitt skráð einu sinni í happdrættispottinn góða en að sjálfsögðu er þér heimilt að reiða eins marga fimm hundruð kalla af hendi og þér lystir, t.d. færðu nafnið þitt skráð einu sinni ef þú greiðir kr. 500.-, fimm sinnum ef þú greiðir kr. 2500.-, tíu sinnum ef þú greiðir kr. 5.000.- o.s.frv.
Reikningsnúmer klúbbsins er 0133-15-200166, kt. 690802-3840, vinsamlegast tilgreinið HAPPDRÆTTI í skýring greiðslu/tilvísun og kennitölu ykkar í GREIÐANDI.
Veglegir vinningar að vanda, m.a.:
- American Bar, gjafabréf.
- AVIS bílaleiga, afnot af bifreið í tvo daga.
- Bland í poka í boði Chelsea-klúbbsins.
- Bombay Bazaar, gjafabréf.
- Bræðurnir Ormsson, heimilistæki.
- Chelsea-treyja, árituð af leikmönnum Chelsea.
- Dekkjahöllin, dekkjaumgangur að andvirði kr. 70.000.-
- Fiskbúðin Hafberg, gjafabréf.
- Grand Hótel Reykjavík, gjafabréf.
- Hársnyrtistofan Dalbraut 1, gjafabréf.
- Keiluhöllin, gjafabréf.
- Kjötsmiðjan, gjafabréf.
- Knattspyrnuverslunin Jói útherji, gjafabréf.
- Lemon, gjafabréf.
- Marko-Merki, Chelsea-ledljós.
- Orkan, inneignarkort.
- Rikki Chan, gjafabréf.
- Shake & Pizza, gjafabréf.
Lokað verður fyrir þátttöku kl. 24:00 föstudaginn 27. maí, dregið verður í happdrættinu á félagsfundi sem fram fer í Ölveri laugardaginn 28. maí 2022.
Ekki flókið, allir að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt!
Nánari upplýsingar í síma 864 6205.
Bestu kveðjur,
Stjórnin.