Vináttuleikur – Chelsea vs Bayern Munchen

Vert er að vekja athygli á frétt á heimasíðu Chelsea Football Club um vináttuleik sem er fyrirhugaður á Stamford Bridge laugardaginn 9. september n.k. á milli Chelsea og Bayern Munchen.

Vorum að fá tilkynningu frá höfuðstöðvunum um að félagsmenn okkar hafi forkaupsrétt á miðum á þennan leik (sjá að neðan) til kl. 11:00 föstudaginn 5. maí n.k.

Grunnverð miða er GBP 35.- fyrir fullorðna (20 – 64 ára), GBP 17,50 fyrir börn og unglinga (19 ára og yngri) og GBP 17,50 fyrir 65 ára og eldri.

Tekið er við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is Nánari upplýsingar má fá í síma 864-6205

Heimsækið www.chelseafc.com og smellið á Latest – News og svo á: Legends of Europe ticket details confirmed as Zola joins the team

Upp