Úrslit Tippleiksins 2023-2024 og fleira

2

Úrslit í Tippleik Chelsea.is vegna keppnistímabilsins 2023-2024 voru kunngjörð á félagsfundi í Chelsea-klúbbnum er haldinn var í Ölveri laugardaginn 1. júní sl.

Við sama tækifæri voru veittar viðurkenningar fyrir efstu þrjú sætin í Tippleiknum auk þess sem einn heppinn Tipplingur hlaut glaðning burtséð frá árangri (slembiúrtak).

Yfir tímabilið voru í heildina veittir alls 18 vinningar sem dreifðust á 10 getspaka Tipplinga en m.a. voru veitt verðlaun fyrir hæsta skor hvers mánaðar á keppnistímabilinu.

Á vorfundinum kom fram hugmynd um að efna til Tippleiks er næði til leikja Chelsea á undirbúningstímabili liðsins fyrir næsta keppnistímabil og munu umsjónarmenn Tippleiksins auk stjórnar Chelsea-klúbbsins taka ákvörðun þar um á næstu vikum og verður niðurstaða þar um kynnt er hún liggur fyrir.

Umsjónarmenn Tippleiksins færa þeim samstarfsaðilum er gáfu vinninga í leikinn bestu þakkir fyrir og óska jafnframt vinningshöfum öllum til hamingju með vinninga sína.

Þrjú efstu sætin í Tippleiknum skipuðu eftirtaldir:

  1. Jóhannes Elíasson             83 stig
  2. Steinar Harðarson             75 stig
  3. Þórhallur Sverrisson         64 stig

Slembiúrtaki = Árni Björn Ólafsson.

Tippkveðja,

Umsjónarmenn.

Upp