Meistaradeildarsætið er klárt en tímabilið er þó ekki enn búið og það er bikar í boði á miðvikudaginn kemur þegar við tökum á móti Real Betis í úrslitum Sambandsdeildarinnar klukkan 19:00.
Keiluhöllin Egilshöll ætlar að bjóða okkur til sín að horfa á leikinn og hvetjum við sem flesta að mæta í treyjum þangað.
Epic-bet ætlar að splæsa bjór á barnum fyrir hvert mark sem verður skorað í leiknum og þá mun Hjörvar Hafliðason sjá um Hjöbbquiz að leik loknum. Það er aldrei að vita nema við fáum að sjá sérstök verðlaun fyrir einhvern heppinn meðlim Chelsea-klúbbsins sem mætir.
Tryggið ykkur borð, mætum í treyjum og klárum Evrópuskápinn á miðvikudaginn!
Borðpantanir er hægt að senda á keiluhollin@keiluhollin.is
Fyrir þá sem eru fyrir norðan er vert að minna á að Chelsea-samfélagið á Akureyri ætlar að safnast saman á Verksmiðjunni á Glerártorgi þegar Chelsea mætir Real Betis í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar, miðvikudaginn 28. maí næstkomandi.
Verksmiðjan sér til þess að við fáum að vera á efri hæðinni.
Þar verður í boði:
20% afsláttur af matseðli!
Happy hour á Víking Lite allan tímann!
Píluspjöldin verða öll opin fyrir okkur.
Við hvetjum ykkur öll til að mæta í Chelsea- treyjum.
Höfum gaman og fögnum titli um kvöldið!
Og að sjálfsögðu er leikurinn einnig sýndur beint á Ölver.