Úrslit í Tippleik Chelsea 2024-2025

Úrslit í Tippleik Chelsea.is vegna keppnistímabilsins 2024-2025 voru kunngjörð á félagsfundi í Chelsea-klúbbnum er haldinn var í Ölveri þriðjudaginn 3. júní sl.

Við sama tækifæri voru veittar viðurkenningar fyrir efstu þrjú sætin í Tippleiknum auk þess sem einn heppinn Tipplingur hlaut glaðning burtséð frá árangri (slembiúrtak).

Yfir tímabilið voru í heildina veittir alls 20 vinningar sem dreifðust á 10 getspaka Tipplinga en m.a. voru veitt verðlaun fyrir hæsta skor hvers mánaðar á keppnistímabilinu.

Umsjónarmenn Tippleiksins færa þeim samstarfsaðilum er gáfu vinninga í leikinn bestu þakkir fyrir og óska jafnframt vinningshöfum öllum til hamingju með vinninga sína.

Þrjú efstu sætin í Tippleiknum á meðal félagsmanna skipuðu eftirtaldir (utanfélagsmenn geta ekki unnið til verðlauna í Tippleiknum):

  1. Freysteinn G Jóhannsson            95 stig
  2. Arnór Hillers                                  89 stig
  3. Eyjólfur Þ Þórðarson                    75 stig

Slembiúrtaki = Víðir Ragnarsson

Upp