Tilfærsla á leikjum Chelsea í október og nóvember vegna sjónvarpsútsendinga

Nú liggur fyrir hvaða leikir með Chelsea í Úrvalsdeildinni í október og nóvember verða fluttir til vegna beinna útsendinga frá þeim í sjónvarpi og eru þeir sem hér segir:

Chelsea vs Watford, fer fram mánudagskvöldið 23. október og hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma, sýndur beint á SKY SPORTS.

Verði annað liðið eða bæði þátttakendur í fjórðu umferð Deildabikarsins (Carabao Cup) færist þessi leikur aftur til laugardagsins 21. október og hefst hann þá kl. 11:30 að íslenskum tíma.

Bournemouth vs Chelsea fer fram laugardaginn 17. september og hefst kl. 16:30, sýndur beint á BT SPORT.

Chelsea vs Manchester United, fer fram sunnudaginn 5. nóvember og hefst kl. 16:30, sýndur beint á SKY SPORTS.

Liverpool vs Chelsea, fer fram laugardaginn 25. nóvember og hefst kl. 17:30, sýndur beint á BT SPORT.
Ef Liverpool á leik í Evrópudeildinni fimmtudaginn á undan færist leikur liðsins gegn Chelsea til sunnudagsins 26. nóvember og hefst þá kl. 12:00.

Leikir í desember og janúar, tilkynnt 12. október.
Leikir í febrúar, tilkynnt 12. desember.
Leikir í mars, tilkynnt 25. janúar.
Leikir í apríl, tilkynnt 26. febrúar.
Leikir í maí, tilkynnt 6. apríl*
*Leikir í lokaumferðinni tilkynntir er öll liðin hafa klárað 37 umferðir!

Andstæðingur, leikdagur og leikstaður í þriðju umferð Carabao Cup sem fram fer 20. september n.k. ætti að liggja fyrir seinni part ágústmánaðar. Dregið verður í Meistaradeildinni þegar leikjum í undankeppninni lýkur sem verður væntanlega í síðustu viku ágústmánaðar! Andstæðingur, leikdagur og leikstaður í þriðju umferð FA Cup sem fram fer 6. janúar 2018 ætti að liggja fyrir 3. desember n.k. 

Upp