Nú þegar að Vetur konungur hefur kvatt er rétt að vekja athygli ykkar sem fylla flokk bifreiðaeigenda á samstarfssamningi Chelsea-klúbbsins á Íslandi og Dekkjahallarinnar sem er umboðsaðili Yokohama á Íslandi.
Samningur þessi færir félagsmönnum í Chelsea klúbbnum afslátt á umfelgunum hjá Dekkjahöllinni (15%) sem og á verði Yokohama hjólbarða (22% frá listaverði), hvoru tveggja gegn framvísun gilds félagsskírteinis frá Chelsea klúbbnum.
Dekkjahöllin er með þjónustustöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík (Skeifunni 5 og Skútuvogi 12).
Allir á YOKOHAMA!