Samfélagsskjöldurinn, forkaupsréttur á miðum

Hinn árlegi leikur Englandsmeistaranna og ensku bikarmeistaranna um samfélagsskjöldinn (Community Shield) fer fram á Wembley leikvanginum í London sunnudaginn 6. ágúst n.k. en þessi leikur markar upphaf nýs keppnistímabils í ensku knattspyrnunni ár hvert.

 

Það verða Englandsmeistarar Chelsea og bikarmeistarar Arsenal sem eigast við að þessu sinni og er forkaupsréttur okkar á miðum á leikinn til miðnættis fimmtudaginn 6. júlí n.k.

ATH. Þessi leikur fellur undir Loyalty Points regluna og þarf 10 punkta til.

Miðapantanir berist formanni Chelsea klúbbsins á netfangið chelsea@chelsea.is fyrir sama tíma.

Athugið að staðfestingar- & tryggingargjald (krónur 10.000.- hver miði) þarf einnig að greiða fyrir fyrir sömu tímamörk.

Nánari upplýsingar má fá í síma 864 6205.

Upp