Reece James hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea til næstu sex ára. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en James, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá félaginu.
Alls á hann að baki 128 leiki fyrir félagið í öllum keppnum þar sem hann hefur skorað 10 mörk og lagt upp önnur 20. Hann varð Evrópumeistari með liðinu árið 2021 en hann hefur verið lykilmaður í varnarleik liðsins undanfarin tímabil.
James lék sinn fyrsta landsleik fyrir England árið 2020 en alls á hann að baki 13 A-landsleiki fyrir enska liðið.