Eins og ykkur ætti nú að vera kunnugt þá var dregið í fjórðungsúrslit Meistaradeildarinnar í knattspyrnu í morgun og dróst Chelsea gegn frönsku meisturunum í Paris Saint-Germain og hafa leikdagar nú verið ákveðnir. Fyrri leikur liðanna fer fram á heimavelli Paris Saint-German, Parc des Princes, í París miðvikudagskvöldið 2. apríl en seinni leikurinn á Stamford Bridge þriðjudagskvöldið 8. apríl n.k.
Við höfum mjög skamman tíma í forkaupsrétti á miðakaupum en miðapantanir þurfa að berast formanni Chelsea klúbbsins í síma 696 0963 fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 25. mars n.k. Staðfestingar- & tryggingargjald þarf að greiða fyrir sama tíma!
Ekki er vitað að svo stöddu með fyrirkomulag miðapantana á leik liðanna í París.