Ágætu félagar.
Nú hefur verið opnað á miðapantanir á heimaleiki Chelsea í Úrvalsdeildinni 2021-2022 og má sjá á heimasíðu Chelsea klúbbsins hvenær forkaupsrétti okkar á tiltekna leiki lýkur.
Fyrirvari á miðapöntunum á leik Chelsea vs Crystal Palace sem fram fer á Stamford Bridge laugardaginn 14. ágúst n.k. er mjög skammur eða til kl. 20:00 sunnudaginn 18. júlí 2021.
Eingöngu er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is, skilyrði er að viðkomandi hafi greitt árgjaldið fyrir þann tíma og hafa ber í huga að reglan „ONE TICKET PER MEMBER“ gildir hér sem og um aðrar miðapantanir í forkaupsrétti okkar.
Við flytjum ykkur nánari fréttir á næstu dögum um lokafresti vegna miðapantana á aðra leiki Chelsea, leiki hvar krafist er Loyalty punkta, leiki sem gefa Loyalty punkta og hversu marga sem og verðflokka leikjanna.
Nánari upplýsingar má fá í síma 864 6205.
Með meistarakveðju.
Stjórnin.