Nú liggja fyrir sjónvarpsútsendingar frá leikjum Chelsea í Úrvalsdeildinni í ágúst og september og færast einhverjir af leikjum Chelsea til vegna þessa frá áður auglýstri leikjaskrá.
Eftirtaldir leikir Chelsea í ágúst og september verða í beinum sjónvarpsútsendingum:
- Chelsea v Swansea City, fer fram laugardaginn 8. ágúst n.k., leikurinn hefst kl. 16:30 að íslenskum tíma og verður sýndur beint á SKY SPORTS.
- Manchester City v Chelsea, fer fram sunnudaginn 16. ágúst og hefst kl. 15:00, sýndur beint á SKY SPORTS.
- West Bromwich Albion v Chelsea, fer fram sunnudaginn 23. ágúst og hefst kl. 12:30, sýndur beint á SKY SPORTS.
- Everton v Chelsea, fer fram laugardaginn 12. september og hefst kl. 11:45, sýndur beint á BT.
- Chelsea v Arsenal, fer fram laugardaginn 19. september og hefst kl. 11:45, sýndur beint á BT.
- Newcastle United v Chelsea, fer fram laugardaginn 26. september og hefst kl. 16:30, sýndur beint á SKY SPORTS.
Forkaupsréttur okkar á miðum á leik Chelsea v Swansea City er ákaflega skammur eða til kl. 22:00 annað kvöld, laugardaginn 4. júli!
Tekið er við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is, athugið að greiða þarf staðfestingar- & tryggingargjald vegna miðapantana áður en pöntun er send til Chelsea Football Club!
Upplýsingar um forkaupsrétt á miðum á aðra leiki Chelsea í Úrvalsdeildinni í ágúst og september verða komnar inn á heimasíðu Chelsea klúbbsins síðar í dag (www.chelsea.is – Hótel- & Miðapantanir 2015 – 2016).
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 864 6205.