Luton Town og Chelsea eigast við í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar og fer leikur liðanna fram á Kenilworth Road, heimavelli Luton Town, miðvikudagskvöldið 2. mars n.k. og hefst hann kl. 19,15.
Chelsea Football Club hefur ákveðið að sala miða á þennan leik falli undir Loyalty Points regluna og þarf 10 Loyalty punkta til í forkaupsrétti okkar sem er mjög skammur eða miðnættis fimmtudagsins 17. febrúar n.k.
Miðaverð á leikinn er í lægri kantinum,
- GBP 28.- fyrir 75 ára og eldri,
- GBP 30.- fyrir 65 – 74 ára,
- GBP 34.- fyrir 22 – 64 ára,
- GBP 26.- fyrir 19 – 21 árs,
- GBP 23 fyrir 17 – 18 ára,
- GBP 18.- fyrir 10 – 16 ára,
- GBP 14.- fyrir 9 ára og yngri.
Frjálst sætaval er á Kenilworth Road leikvellinum.
Tekið er við miðapöntunum í síma 864 6205.