Nú er komið að kosningu á leikmanni ársins hjá Chelsea Football Club vegna yfirstandandi keppnistímabils. Kosningin er sameiginleg með öllum viðurkenndum stuðningsmannaklúbbum Chelsea og verða tveir fulltrúar einhvers þeirra klúbba er taka þátt svo dregnir út að lokinni kosningu og fá þeir tækifæri til að afhenda leikmanni ársins viðurkenningu vegna kjörsins fyrir leik Chelsea vs Huddersfield Town sem fyrirhugaður er á Stamford Bridge laugardaginn 21. apríl n.k.
Svo er bara að drífa í að kjósa og senda okkur atkvæði ykkar fyrir kl. 12:00 föstudaginn 23. mars á netfang chelsea@chelsea.is
Þess má geta að einn heppinn þátttakandi fær glaðning frá Chelsea klúbbnum.
Meistarakveðja,
Stjórnin.
P.S. Chelsea Football Club fagnar 113 ára afmæli í dag og við gerum kröfu til leikmanna liðsins um 3 stig í leiknum gegn Crystal Palace nú síðdegis í afmælisgjöf til félagsins!