Enska knattspyrnusambandið hefur gefið út að keppni í ensku úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2021 – 2022 muni hefjast laugardaginn 14. ágúst n.k., mögulega verði þó einn leikur á dagskrá föstudagskvöldið 13. ágúst.
Keppni í Úrvalsdeildinni mun svo ljúka sunnudaginn 22. maí 2022 fari allt að óskum.
Leikjaskrá ensku úrvalsdeildarinnar verður opinberuð miðvikudaginn 16. júni kl. 08:00 að íslenskum tíma.
Chelsea mun þó hefja keppnistímabilið fyrr, þ.e. miðvikudagskvöldið 11. ágúst í leiknum um Ofurbikar Evrópu (UEFA Super Cup) gegn Villareal en leikur liðanna fer fram í Belfast.
Mögulega mun liðið leika einhverja æfingaleiki áður.
Við munum birta leikjaskrá Chelsea svo fljótt sem auðið verður á www.Chelsea.is