Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, fullyrðir að hann hafi verið „mjög, mjög ánægður“ með Edouard Mendy eftir frumraun hans í ósigri Carabao-bikarsins gegn Tottenham.
Mendy var að byrja sinn fyrsta leik eftir 23 milljón punda komu frá Rennes. Senegal landsliðsmaðurinn skilaði sínu hlutverki vel.
Chelsea tók forystuna í fyrri hálfleik þegar Timo Werner skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir 53 milljón punda komu frá Red Bull Leipzig en Erik Lamela jafnaði þegar aðeins 6 mínútur voru eftir til að enda leikinn í vítaspyrnukeppni.
Þessi 28 ára leikmaður var örugglega á pari við Kepa Arrizabalaga en Mendy náði þó ekki að verja neina vítaspyrnum í lokin.
Lampard sagðist hins vegar ánægður með frammistöðu Mendys í heild og sagði hann valda vel þessu hlutverki.
„Mér fannst hann mjög góður,“ sagði Lampard. „Hann náði góðum vörslum og náði að grípa inn í á mikilvægum augnablikum“
Með svo marga leiki á svo stuttum tíma tefldi Spurs ekki fram sínum bestu mönnum. Chelsea sýndi í upphafi yfirburði en FL varð svekktur að liðið næði ekki að byggja á marki Werners
„Við vorum með yfirburði stóran hluta leiksins og hefðum viljað skora fleiri mörk. Fengum færi en Callum fékk gott tækifæri í lok fyrri hálfleiks“ sagði Lampard.