Kjör á leikmanni tímabilsins 2018 – 2019

Nú er komið að kosningu á leikmanni ársins hjá Chelsea Football Club vegna yfirstandandi keppnistímabils.Kosningin er sameiginleg með öllum viðurkenndum stuðningsmannaklúbbum Chelsea og verða tveir fulltrúar einhvers þeirra klúbba er taka þátt svo dregnir út að lokinni kosningu og fá þeir tækifæri til að afhenda leikmanni ársins viðurkenningu vegna kjörsins fyrir leik Chelsea vs Burnley sem fyrirhugaður er á Stamford Bridge laugardaginn 20. apríl n.k.

Atkvæðaseðil vegna kjörsins má ná í hér.

Svo er bara að drífa í að kjósa og senda okkur atkvæði ykkar fyrir kl. 17:00 föstudaginn 8. mars á netfang chelsea@chelsea.is 

Þess má geta að einn heppinn þátttakandi fær glaðning frá Chelsea klúbbnum.

Upp