Hugleiðingar um Chelsea undir stjórn Alonso (fyrri hluti)

21. nóv. 2026

Margt skrýtið hefur drifið á daga okkar Chelsea fólks það sem af er ári þegar litið er á atburðarásina sem snertir Chelsea gagnrýnu auga (og jafnvel augum).

Maresca hafði haldið Chelsea í Evrópusæti fram að síðustu áramótum en liðið var þá með 30 stig eftir 19 leiki. Þá sagði Maresca við BlueCo. „Ég nenni þessu ekki lengur“ og lét sig snemmhendis hverfa frá Cobham. „Ég vil ekki einu sinni þiggja laun frá ykkur“ sem var nokkuð höfðinglegt svo maður undraðist hvað á gengi eiginlega á milli eigenda og þjálfara. Flestir töldu (þar á meðal ég) að Maresca hefði fengið nóg af óbilgirni og þvergirðingshætti Clearlake og kompaní í leikmannakaupum. Flestum okkar þykir samt BlueCo hafa farið offari í leikmannakaupum en undantekningarlítið voru gerð dýr áhættukaup með framtíðar söluhagnaðarsjónamið í huga frekar en að huga að hvaða leikmenn vantaði í hvaða stöður. Semsagt að kaupa leikmenn í stöður þar sem liðið var veikt fyrir. En því miður hefur BlueCo ekki haft það sem forgangssjónarmið í leikmannakaupum.

Chelsea undir stjórn Maresca. Mynd: Chelsea FC

En Maresca var að jarma um skort á miðvörðum þótt fyrir væru Fofana, Tosin, Chalobah, M. Sarr, Badiashile, Disasi, Hato og Colwill sem var að vísu í endurhæfingu. Einnig hinn ungi Acheampong sem er miðvörður að upplagi en hefur hingað til verið notaður mest sem bakvörður. Allt leikmenn (nema Chalobah, Colwill og Acheampong) sem BlueCo eða frekar „Íþróttastjórar“ Chelsea höfðu keypt síðustu 3 árin. Flestir ef ekki allir af gæðum sem félagið hefði ekki litið við fyrr á þessari öld. Meira að segja áður en Roman tók yfir félagið var Chelsea með „alvöru“ miðverði eins og Desailly, Leboeuf, Gallas og Terry. Ekki versnaði varnarlínan þegar Carvalho kom til okkar 2004. Einhver albesti miðvörður Evrópu á sínum tíma. Og ekki var hann hár eða massaður heldur skynsamur og teknískur stríðsmaður.

Mögulega er ósanngjarnri rýrð kastað á miðvarðagengið sem íþróttastjórarnir keyptu og ætlað var að leika fyrir framan markmann (hvort sem var Sánchez eða Jörgensen) sem var eins og tifandi tímasprengja í úthlaupum, sendingum og inngripum í leikinn í teignum. Hvort taugaveiklaðir miðverðir gerðu markmanninn óöruggan eða óöryggi og klaufaskapur markmannsins gerði miðverðina að taugaveikluðum klaufabárðum skal ósagt látið. En vörnin „míglak“ og mest vegna mistaka í hjarta hennar. Og flestir okkar miðverðir gerðu sig seka um einföldustu mistök.

En sögur bárust fyrst um að Maresca hafi farið fram á það við BlueCo að keyptur væri MIÐVÖRÐUR í stað Colwill sem meiðst hafði á undirbúningstímanum. Í stað þess keyptu íþróttastjórarnir og BlueCo tvo kantmenn (Garnacho og Gittens) fyrir hátt í 100 millur. En miðvarðarkrísan var augljós öllum þegar komið var fram að áramótum og því illskiljanlegt að dekra ekki að þá kröfu þjálfarans að styrkja miðvarðarhópinn. Svo Maresca stakk hreinlega af eins og þjófur að nóttu.

Síðan átti það heldur betur eftir að skýrast að aðskilnaðurinn hafði ekkert með eitt stykki miðvörð að gera heldur var UAE (United Arab Emirates) búið var að kaupa Maresca á laun þótt hann ætti eftir þrjú og hálft ár af samningnum við Chelsea. Eða frekar Sheikh Mansour bin Zayed al-Nahyan varaforseti landsins og forsætisráðherra og bróðir Sheikh Mohammed bin Zayed forseta landsins (emír). Sem er tengdasonur emírsins í Dubaí. En Sheikh Mansour er „eigandi“ Manchester City frá árinu 2008 og hefur árangur liðsins verið lógaritmísk lína síðan þá.

Liam Rosenior

Fyrsti leikur eftir flótta Maresca var 4. janúar sl. við Manchester City á Emirates. Enda Maresca á milli steins og sleggju tveggja húsbónda ef hann hefði stjórnað þeim leik. Þannig að hann valdi hollustu við sinn vinnuveitanda til frambúðar þó svo hann neitaði þeim orðrómi að hans biði stjórastarf Guardiola þegar sá mentor Maresca „hætti“ sem auðvitað var búið að ákveða að yrði á komandi vori. McFarland þjálfari yngri flokka í Cobham sá um að stýra liðinu þessum leik. Og náði það jafntefli við ManCity undir hans stjórn.

Maresca og Guardiola ræða málið. Mynd: Chelsea FCStaðgengill Maresca var sóttur til systurfélagsins í Frakklandi. Rosenior var að þá gera ágætis hluti með Strasbourg og byrjaði þokkalega með Chelsea í sínum fyrstu leikjum.

En Rosenior náði í 17 stig í sínum fyrstu 10 leikjum sem er einu stigi meira en Alonso náði í sínum 10 fyrstu (sem er versti árangur hjá þjálfara Chelsea í deildinni) en næstu fimm leikir Rosenior töpuðust allir (án þess að Chelsea skoraði mark) sem og báðir leikirnir við Arsenal í undanúrslitum í EFL bikarnum og báðir leikirnir gegn PSG í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Rosenior var látinn taka pokann sinn eftir aðeins 107 daga í starfi. Fæstir okkar áhangenda grétu þá brottför.

Liam Rosenior á blaðamannafundi. Mynd: Chelsea FC

Í viðtali við Rosenior fyrir skömmu sagðist hann samt ánægður með starf sitt (og árangur) hjá Chelsea og þá reynslu sem hann öðlaðist. Hann vildi þó meina að hann hefði fengið lítinn starfsfrið fyrir götublöðunum sem að hans sögn fundu eiginlega að öllu sem hann gerði og sagði (og hvernig hann sagði það) bæði innan vallar sem utan. Og jafnvel hvernig hann klæddist. Götublöðin ensku eru að vísu grimm, ósanngjörn og jafnvel illkvittin, sérstaklega þegar þau finna veikan blett á einhverjum. Og stunda í mörgum tilfellum einelti og rætni og nota jafnvel uppdiktaðar „staðreyndir“ þegar þau finna einhvert fórnarlamb til að þjösnast á. En maður hélt að stjóri/þjálfari hjá svo stóru félagi sem Chelsea er ætti að hafa þykkan skráp sem hluta af starfskröfu stjóra. Það er greinilegt að Rosenior hefur ekki fylgst með Chelsea með mjög vökulu auga í gegnum tíðina því enska götupressan hefur eiginlega lagt Chelsea í einelti svo lengi sem ég man eftir og ef félaginu og stjórum/þjálfurum þess mistekst eða mistígur sig er mikil þórðargleði í herbúðum þeirra.

Sumum þótti Rosenior lítill greiði gerður með því að munstra hann sem þjálfara Chelsea. Staðan var rúmlega númeri og stór fyrir hann og því fór sem fór. Ekkert við hann að sakast heldur þá sem réðu hann til starfa.

McFarland tók við starfi Rosenior í lok apríl og stjórnaði liðinu síðustu 4 leikina í deildinni og úrslitaleiknum í FA bikarkeppninni gegn ManCity á Wembley. Maresca náði því 30 stigum í 19 leikjum (1.6 pr.) í deildinni. Rosenior náði 17 stigum í 14 leikjum (1.4 pr.) og McFarland náði í 5 stig í 5 leikjum (1 pr.). Og Chelsea datt úr fimmta sæti um áramótin í það tíunda í mótslok.

Xabi Alonso

Hálfum mánuði eftir brottrekstur Rosenior réði Chelsea Xabi Alonso. Enginn fer í grafgötur um að þar er á ferð frábær knattspyrnumaður sem lék með Liverpool, Real Madrid og Bayern Munchen þar sem hann lék undir stjórn Guardiola, Mourinho, Benitez, Ancelotti og Bosque. Alonso hóf sinn þjálfaraferil hjá Real Sociadad B (eiginlega B lið Real Sociadad) árið 2019. Árið 2022 var hann ráðinn til Bayern Leverkusen þar sem hann náði einstæðum árangri með liðið þegar hann á sínu fyrsta tímabili náði 6. sæti í Bundeslígunni með liðið þrátt fyrir að taka við því í október eftir skelfilega byrjun. Sem og að komast í undanúrslit í Evrópudeildinni. Tímabilið 2023-24 var einka glæsilegt en Leverkusen var taplaust í Bundeslígunni og setti nýtt deildarmet með 28 sigra, 90 stig, 89 skoruð mörk og 24 mörk fengin á sig. Tíu leikir voru unnir í röð og liðið hélt hreinu í 16 leikjum. Auk þess að fara í gegnum 34 leiki í röð ósigraðir. Og fóru einnig ósigraðir í gegnum „fyrri hluta“ Meistaradeildarninnar.

Tímabilið 2024-2025 var ekki alveg eins glæsilegt enda erfitt að toppa fyrri árangur. Bayern Leverkusen lendi í öðru sæti í Bundeslígunni á eftir Bayern Munchen. Og náði í 16 liða úrslit í Meistaradeildinni þar sem erkióvinurinn Bayern Munchen sló þá út.

Auðvitað fóru stóru liðin á kíkja á strák og úr varð að hann tók við stjórastarfinu af Ancelotti hjá Real Madrid vorið 2025. Real Madrid byrjaði tímbilið mjög vel en síðan kom smá hökt en ekkert er óeðlilegt hjá nýjum stjóra með „nýjan“ mannskap. Fram í byrjun janúar 2026 hafði Real Madrid unnið 19 leiki, tapað 2 leikjum og gert 3 jafntefli í La Liga. Lið hafði semsagt náð 45 stigum meðan Barcelona var með 49 stig. Það er miklu minna óþol hjá Real Madrid varðandi árangur hvort sem það er hjá leikmönnum eða þjálfara en hjá flestum öðrum liðum. Eftir tap gegn Barcelona í úrslitaleik Spænska Superbikarsins þann 8. janúar 2026 var Alonso rekinn mest vegna þess að himinn og haf var á milli þjálfunar- og stjórnunaraðferða fyrri stjóra (Ancelotti) og mun harðari aga og rígbundnara leikskipulags Alonso. Þannig að það fór svoldið þversum ofan í ofurstjörnurnar í liðinu. Endalokin urðu þegar Alonso skipti rótinni Vinicius út af og hann brjálaðist á hliðarlínunni. Þegar stjórn R. Madrid gerði ekkert í því agabroti sá Alonso sína sæng útbreidda ekki síst þegar „rótin“ hélt áfram að hamast í sínum félögum yfir nýja stjóranum. Alonso hafði „tapað klefanum“ og hætti sem stjóri. Eftirmaður hans náði 41 stigi í „seinni“ 19 leikjunum eða 4 færri en Alonso.

Alonso á Brúnni. Mynd Chelsea FC

Þrátt fyrir tiltölulega litla reynslu sem þjálfari/stjóri hafa flest okkar Chelseafélaga verið frekar jákvæð fyrir ráðningu Alonso í starfið. Hann hafði sannanlega náð ótrúlegum árangri með Bayern Leverkusen þannig að agi, skipulag og festa sem einkenndi leikstík Alonso er einmitt það sem Chelsea vantar. Öfluga vörn og færri mörk svo ekki sé talað um að „halda markinu hreinu“. Og koma jafnvægi á leik okkar manna. Ekki að leika eins og „heimsmeistarar“ einn daginn og síðan eins og þunnir sunnudagsbumbuboltagaurar þann næsta.

Það sem kom flestum okkar á óvart var hvernig BluCo kúventi sinni stefnu í leikmannamálum og leyfði Alonso greinilega að ráða miklu í leikmannakaupum í stað íþróttastjóranna og braut rækilega < 25 ára höfuðregluna eftirminnanlegu. Gallinn var þó sá að BlueCo fór offari í sölumálum að og enn og aftur eru við með ójafnvægi í liðinu. Sérstaklega er ég ósáttur með sölunni á miðjumanni (Santos) og ekki síður á framherjanum Jackson. Í staðinn var Welbeck keyptur í framlínuna en ekki notaður. Emegha hefur ekki fengið margar mínútur til þessa þannig að þegar Pedro meiddist hefur enginn alvöru framherji (senter) verið notaður heldur notast við falska níu með döprum árangri. Til hvers að kaupa Welbeck og Emegha ef þeim er ekki treyst?

Miðjumennirnir Essugo og Santos voru seldir og Henderson keyptur. Einnig átti að kaupa Camara frá Monaco en við voru teknir í bakaríið af boltafurstunum á síðustu stundu. Ekki er lagt mat á hvort það var rétt eða röng ákvörðun að reyna að fá þennan leikmann til okkar. Hann stóð sig ágætlega á HM en óvíst hvort hann hefði plummað sig í ensku deildinni. Kaupverðið slagaði hátt í góðan og reyndan miðjumann sem þegar hefur haslað sér völl í deildinni en hún hlýtur að vera númer eitt, tvö og þrjú því Chelsea er ekki í neinum Evrópuslag þennan veturinn. Mörgum líst betur á hinn unga og efnilega Alex Scott (Bournemouth) en hans samningur rennur út vorið 2028. En hann verður ekki gefins, sérstaklega þegar Chelsea á í hlut.

Gamalreyndur klassamarkmaður var í Martinez en þeir Sanches og Jörgensen báðir lánaðir. Hinn efnilegi Penders var því settur í meistaranám hjá Martinez sem varamarkmaður.

Ekki má gleyma að BlueCo lét loks undan bón Maresca að kaupa miðvörð. Að vísu 9 mánuðum eftir að hann stakk af frá Chelsea. Lacroix var keyptur frá Crystal Palace í lok ágúst. Því miður var Chalobah seldur og hjörðin (Disasi, Badiashili, Sarr) lánuð. Þá var Anselmino lánaður til systurfélagsins í Frakklandi sl. tímabil en innkallaður sl. haust og fór beint á meiðslabekkinn.

Vængbakverðirnir Palestra og Chavarria voru síðan keyptir að beiðni Alonso en hann vill frekar notast við vængbakverði en kantmenn. Það þýðir að kantmannakaupæðið (Estavao, Gittens, Garnacho, Mudryk, Derry, Quenda og Neto) varð tilganglaust í einu vetfangi. Neto og mögulega Quenda eru þeir einu sem kunna eitthvað að verjast en flestir hinna ekki svo mikið. Þá kom Barco frá Strasbourg en hann er miðjumaður/vængbakvörður.

Morgan Rodgers kom til okkar í sumar og er þar á ferð klassaleikmaður. Ekki er verra að hann er góðvinur Palmers sem Chelsea þarf endilega að efla til fyrri dáða. Til þess þarf Alonso að finna leið til að hann hafi frelsi til að njóta sín.

Rogers og Palmer. Mynd Chelsea FC
Bob
Joii
EiríkssonKjötsmiðjan
American Bar
Car RentalHársnyrtistofan