Þýska knattspyrnufélagið Bayer Leverkusen hefur samþykkt að fá vængmanninn Callum Hudson-Odoi á láni frá Chelsea út þetta tímabil.
Til stendur að Hudson-Odoi fljúgi til Þýskalands í dag til að gangast undir læknisskoðun.
Hudson-Odoi hefur lítið spilað með Chelsea að undanförnu og hefur hann komið við sögu í 15 deildarleikjum fyrir Lundúnarliðið á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark og lagði upp tvö til viðbótar.
Þá er annar leikmaður Chelsea, Ethan Ampadu, einnig búinn að semja um að fara á láni út tímabilið en hann er á leið til Spezia þar sem hann mun hitta fyrir íslenskan landsliðsmann, Mikael Egil Ellertsson, sem er á mála hjá ítalska félaginu.