Hópferð á leik Chelsea vs Nottingham Forest 12 – 15. maí 2023

Stjórn Chelsea-klúbbsins hefur ákveðið að efna til hópferðar á leik Chelsea vs Nottingham Forest ef þátttaka reynist næg. Leikur liðanna er fyrirhugaður á Stamford Bridge laugardaginn 13. maí en kann þó að vera færður til sunnudagsins 14. maí. 

Ferðin er farin í samvinnu við Ferðaskrifstofuna Komdu með og The Millennium & Copthorne Hotels at Chelsea Football Club.

 

Ferðatilhögun er sem hér segir:

-Flug með Icelandair til London Heathrow.
FI 450 12MAY KEF LHR 0740 1155.

FI 455 15MAY LHR KEF 2125 2340.
-Rúta til og frá flugvelli.
-Gisting á The Millennium & Copthorne Hotels at Chelsea Football Club í 3 nætur með morgunverði.
-Fararstjóri frá Chelsea-klúbbnum á Íslandi.

-Miði á leik Chelsea og Nottingham Forest í West Lower.

Verð 154.900 kr á mann miðað við tvo saman í herbergi.

Varðandi þátttöku í hópferðina er rétt að taka fram að æskilegt er að senda tilkynningu þar um á netfangið thor@komdumed.is en setja chelsea@chelsea.is í Cc.

Áríðandi er að þeir félagsmenn sem hyggja á þátttöku tilkynni okkur þar um sem fyrst því það er mjög takmarkaður tími sem hótelið getur tekið herbergin frá fyrir okkur vegna mikillar eftirspurnar varðandi gistingu á hótelinu þessa sömu helgi.

Vekjum athygli á að frestur til að tilkynna þátttöku í hópferðina á leik Chelsea vs Nottingham Forest í maí er til kl. 12:00 föstudaginn 3. mars n.k.

Nánari upplýsingar má fá í símum 693-8899 / 864-6205 og á heimasíðu ferðaskrifstofunnar, www.komdumed.is/fotboltaferdir/

Verður óvænt rúsína í pylsuendanum?

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 

Upp