Chelsea mætir annað hvort Notts County eða Peterborough United í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar (FA Cup) og fer leikurinn fram á Stamford Bridge sunnudaginn 8. janúar 2017 og hefst hann kl. 15:00.
Það kemur í ljós þann 20. desember n.k. hvort liðanna, Notts County eða Peterborough United verður þeirrar ánægju aðnjótandi að heimsækja Stamford Bridge í janúar 2017.
Forkaupsréttur okkar á miðum á leikinn þann 8. janúar er mjög skammur en pantanir vegna kaupa á miðum á leikinn þurfa að berast formanni Chelsea klúbbsins í síðasta lagi sunnudaginn 11. desember n.k. á netfang chelsea@chelsea.is
Greiða þarf staðfestingar- & tryggingargjald fyrir sama tíma en verð á miðum á leikinn er mun lægra en á leiki Chelsea í Úrvalsdeildinni, staðfestingar- & tryggingargjaldið er því kr. 6.000.- hver miði.
Sæti í Shed Upper og Lower Stands eru ekki í boði á þennan leik.
Nánari upplýsingar má fá í síma 864 6205 eða í gegnum netfangið chelsea@chelsea.is