ETA- Rafræn ferðaleyfi til Bretlands

Frá og með 2. apríl 2025 þurfa Íslendingar á leið til Bretlands að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi (ETA, Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ferðast en opnað verður fyrir umsóknir 5. mars 2025. 

Íslenskum og öðrum erlendum ríkisborgurum, sem ekki hafa dvalarleyfi í Bretlandi, verður skylt að hafa fengið ETA áður en þeir ferðast til Bretlands óháð því hvort lokaáfangastaður sé Bretland eða um millilendingu sé að ræða. Þetta á bæði við um þá sem ferðast til Bretlands í einkaerindum og styttri vinnuheimsóknum. 

ETA kostar GBP 10 og gildir í tvö ár frá útgáfudegi eða þar til vegabréf viðkomandi rennur út ef það er innan þessara tveggja ára. Auðveldast er að sækja um ETA með „UK ETA app“ smáforriti, fyrir iPhone og Android síma, en einnig er hægt að sækja um á vefsíðu breskra stjórnvalda, GOV.UK.

Athugið að ef dvelja á lengur en í 6 mánuði í Bretlandi, þarf að sækja um viðeigandi dvalarleyfi, og er ekki nóg að hafa ETA. Einstaklingar sem hafa nú þegar dvalarleyfi í Bretlandi þurfa ekki ETA til þess að ferðast til landsins.

Frekari upplýsingar um ETA má finna á GOV.UK.

Upp