Enska bikarkeppnin

Chelsea mætir Hull City á Stamford Bridge í fimmtu umferð keppninnar og fer leikur liðanna fram föstudagskvöldið 16. febrúar n.k., hefst hann kl. 20:00 og verður sýndur beint á BT SPORT.

Forkaupsréttur okkar á miðum á leikinn er mjög skammur eða til kl. 10:00 föstudaginn 2. febrúar.

Miðapantanir berist formanni klúbbsins á netfang chelsea@chelsea.is, miðar nánast á hálfvirði og 5 Loyalty punktar í boði.

Upp