Chelsea er að klára kaupin á markverðinum Edouard Mendy en það er Guardian sem greinir frá þessu í dag.
Mendy er 28 ára gamall en hann er með bæði franskt og senegalskt ríkisfang. Hann hefur hins vegar varið mark senegalska landsliðsins frá árinu 2018.
Mendy kemur til Chelsea frá franska fyrstudeildarfélaginu Rennais þar sem hann hefur spilað frá 2019 en þar áður lék hann með Reims frá 2016 til 2019.
Kaupverðið á markverðinum er talið vera í kringum 20 milljónir punda en Mendy er ætlað að berjast um markvarðastöðuna við Kepa Arrizabalaga.