Endurnýjanir og nýskráningar vegna aðildar að Chelsea-klúbbnum og Chelsea Football Club eru nú í fullum gangi og fyrir þau ykkar sem vilja tryggja sér 5 Loyalty punkta í bónus fyrir það eitt að greiða valið árgjald tímanlega er ekki eftir neinu að bíða, síðasti séns er kl. 12:00 föstudaginn 18. júlí n.k.
Árgjöld vegna starfsársins 2025– 2026 eru sem hér segir:
- True Blue Membership: Kr. 11.000.-
- CFC Blue Membership: Kr. 8.500.-
- Junior Blues Membership: Kr. 8.500.-
- Ticket Forwarding Membership: Kr. 3.000.-
Upplýsingar um innihald flokkanna og skráningarferlið er að finna á heimasíðu Chelsea-klúbbsins, www.chelsea.is – Skráning.
Árgjöld greiðist inn á reikning 0133-15-200166, kennitala 690802-3840.
Ef þú ert í einhverri óvissu um hvort þú ert búinn að greiða árgjaldið er bara að kíkja á félagatalið á heimasíðu klúbbsins (www.chelsea.is -UM KLÚBBINN -FÉLAGATAL 2024-2025) eða hafa samband við okkur á chelsea@chelsea.is
Meistarakveðja,