Chelsea Women deildabikarmeistarar

Chelsea Women tryggðu sér sigur í dag í enska deildabikarnum er þær unnu öruggan 6-0 sigur á Bristol City Women á Vicarage Road og vörðu þar með titilinn sem þær unnu einnig á síðasta keppnistímabili. Þetta er stærsti sigur sem hefur unnist í úrslitaleik keppninnar, Sam Kerr (3 mörk) og Fran Kirby (2 mörk) tættu vörn andstæðinganna hvað eftir annað í sig svo þar stóð varla steinn yfir steini (enda spilað á grasvelli), Kerr var búin að koma Chelsea í 2-0 eftir tæpar tíu mínútur og átti Kirby stoðsendingarnar í báðum mörkunum, „game over“.

Guro Reitin kom sér einnig á markalistann með góðu marki. Það skyggði hins vegar mikið á sigurgleðina að Maren Mjelde varð fyrir alvarlegum meiðslum seint í leiknum og óvíst hversu lengi hún verður frá.

Til hamingju Chelsea Women!

Upp