Chelsea vs Preston North End

Chelsea mætir Preston North End í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar (FA Cup) og fer leikur liðanna fram á Stamford Bridge laugardaginn 6. janúar 2024. Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til kl. 10:00 miðvikudaginn 13. desember n.k.

Verð miða á þennan leik eru í lægri kantinum, GBP 75.- í Westview (GBP 50.- í Restricted view), GBP 32.- í aðrar stúkur á Stamford Bridge (GBP 27.- í Restricted view í East Upper, GBP 16.- í Restricted view í Matthew Harding Lower).

Miðaverð fyrir eldri borgara (65 ára og eldri) og börn og unglinga (19 ára og yngri) er GBP 16.-, þó ekki í Westview.

5 Loyalty punktar í boði fyrir þá er kaupa miða á þennan leik.

Einungis er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is.

Meistarakveðja,

Stjórnin.

Upp