Chelsea tekur á móti liði Plymouth Argyle í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar og fer leikur liðanna fram á Stamford Bridge laugardaginn 5. febrúar og hefst hann kl. 12:30, sýndur beint á BBC.
Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur, nánar tiltekið til kl. 20:00 mánudaginn 17. janúar n.k., eingöngu er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is
Miðaverð er mjög hófstillt, grunnverð GBP 32.- fyrir fullorðna, GBP 17.- fyrir ellilífeyrisþega (65 ára og eldri) og börn og unglinga (19 ára og yngri), sama verð í allar stúkur, miðar í Shed Lower og Shed Upper þó ekki í boði.
Meistarakveðja,
Stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi