Chelsea vs Leeds United, FA Cup 2024

Chelsea mætir Leeds United í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar (FA Cup) og fer leikur liðanna fram á Stamford Bridge miðvikudagskvöldið 28. febrúar n.k.

Loyalty Points reglan gildir um miðakaup á þennan leik og þurfa félagsmenn okkar að ráða yfir 10 Loyalty punktum til að vera gjaldgengir í forkaupsrétti.

Forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til kl. 11:00 í fyrramálið, þ.e. föstudaginn 9. febrúar.

Verð miða liggur ekki fyrir enn sem komið er!

Einungis er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is.

Meistarakveðja,

Stjórnin.

Upp