Chelsea vs Ipswich Town, hópferð

Stjórn Chelsea-klúbbsins hefur ákveðið að efna til hópferðar á leik Chelsea vs Ipswich Town ef næg þátttaka næst.

Leikur liðanna er fyrirhugaður á Stamford Bridge laugardaginn 12. apríl 2025 en gæti verið færður til sunnudagsins 13. apríl vegna þátttöku Chelsea í Sambandsdeild Evrópu.

Ferðin er farin í samvinnu við ferðaskrifstofuna Tango Travel og The Millennium & Copthorne Hotels at Chelsea Football Club.

Ferðatilhögun er sem hér segir:

11-14. apríl 2025
Flug með Icelandair (fyrra flug út – seinna flug heim).
Gisting í 3 nætur á Chelsea hótelinu + morgunmatur.
Rúta til og frá flugvelli í London.

Miði í West Stand Lower.
Verð 162.900.- kr á mann miðað við tvo saman í herbergi.

Varðandi þátttöku í hópferðina skal senda tilkynningu þar um á netfangið tango@tango.travel en setja chelsea@chelsea.is í Cc.

Frestur til að tilkynna þátttöku er til og með 15. október n.k., staðfestingargjald er kr. 40.000.- sem þarf að greiða fyrir sama tíma.

Nánari upplýsingar má fá í síma 693-8899 / 696-0963 og á heimasíðu ferðaskrifstofunnar, https://www.tango.travel/holiday/hpfer-chelsea-ipswich-11-14-aprl-dce1a0c0a1926ec8884656bf7126c4c3

Upp