Chelsea vs. Blackburn Rovers í Carabao Cup

Chelsea mætir Blackburn Rovers í fjórðu umferð Carabao Cup og fer leikur liðanna fram á Stamford Bridge miðvikudagskvöldið 1. nóvember n.k., forkaupsréttur okkar á miðum á þennan leik er mjög skammur eða til og með sunnudagsins 1. október.

Verð miða á þennan leik eru í lægri kantinum, GBP 50.- í Westview (GBP 33.- í Restricted view), GBP 26.- í aðrar stúkur á Stamford Bridge (GBP 21.- í Restricted view í East Upper, GBP 13.- í Restricted view í Matthew Harding Lower).

Miðaverð fyrir eldri borgara (65 ára og eldri) og börn og unglinga (19 ára og yngri) er GBP 13.-, þó ekki í Westview.

5 Loyalty punktar í boði fyrir þá er kaupa miða á þennan leik.

Einungis er tekið við miðapöntunum á netfangi chelsea@chelsea.is.

Meistarakveðja,

Stjórnin.

Upp