helsea er sagt vera áhugasamt um að fá Mike Maignan, markvörð Lille, í sínar raðir.
Þessi 25 ára gamli markvörður er talinn vera öflug samkeppni fyrir Kepa Arrizabalaga um markmannstöðuna hjá Lundúnarliðinu. Chelsea hefur hins vegar ekki ennþá boðið í leikmanninn.
Talið er að Maignan muni kostar í kringum 27 milljónir punda en hann hefur spilað fyrir yngri landslið Frakklands og verið í hóp hjá A-landsliðinu.
Chelsea keypti Kepa fyrir metfé árið 2018 en hann hefur valdið vonbrigðum hjá liðinu og setti Frank Lampard, stjóri Chelsea, hann á bekkinn og spilaði Willy Caballero nokkrum sinnum á síðustu leiktíð.
Chelsea hefur verið orðað við marga leikmenn í glugganum en talið er að Kai Havertz, Thiago Silva og Ben Chilwell séu allir að ganga til liðs við Chelsea á næstu dögum.