Keppni: Evrópska Sambandsdeildin – Úrslitaleikur
Tími, dagsetning: Miðvikudagur 28. maí kl: 19:00
Leikvangur: Tarczyński Arena, Wroclaw, Pólland
Dómari: Irjfan Polito (Bosnía)
Hvar sýndur: Viaplay / Vodafone Sport
Upphitun eftir: Hafstein Árnason

Þegar flautað var til leiks á City Ground var stemningin rafmögnuð. Bæði lið voru í baráttu um Meistaradeildarsæti, Chelsea í fimmta sæti og Forest í sjöunda, aðeins einu stigi á eftir. Þetta var leikur þar sem hvert einasta atvik skipti máli, og samt tókst báðum liðum að gera fyrri hálfleikinn að eins konar syfjaðri skák – núll skot á markið, fjórar tilraunir samtals, og meira af dramatískum varnarleik en sóknargleði. Pedro Neto og Chris Wood misstu báðir af mjög góðum færum. En í seinni hálfleik kom Chelsea út eins og lið með plan – eða að minnsta kosti meiri ákefð en Forest, sem virtust enn vera dálítið taugaóstyrkir. Á 50. mínútu small það: Hornspyrna, Neco Williams klúðraði hreinsuninni, og skallaði óvart aftur fyrir sig. Pedro Neto potaði boltanum fyrir markið, og Levi Colwill – já, varnarmaðurinn okkar með hárgreiðsluna sem gæti fengið hlutverk í Hollywood – skoraði með einföldu innanfótarskoti í autt netið. 1-0, og Chelsea-aðdáendur á vellinum trylltust eins og þetta væri sigurmark í Meistaradeildarúrslitum. Eftir breytti Maresca útaf vananum og beinlínis lagði rútunni, sem er merki um ákveðinn þroska hjá honum. Romeo Lavia og Malo Gusto komu inn til að styrkja vörnina, og undir lokin var Cole Palmer eini sóknarmaðurinn á vellinum – restin var varnarlína sem hefði gert José Mourinho stoltan. Forest reyndi að svara, en Chris Wood, greyið hann, átti tvö færi í markteignum þar sem hann skaut yfir markið – annað í uppbótartíma. Þvílíkar gjafir til Chelsea, takk kærlega, Chris. Eftir stendur sú staðreynd að Chelsea endar tímabilið í Ensku Úrvalsdeildinni í fjórða sæti með 69 stig sem betrumbæting frá síðasta tímabili. Þetta þýðir að þeir bláu eru á leið í Meistaradeildina á næsta tímabili. Þetta þýðir að núna í fyrsta skipti í mörg ár er klúbburinn orðinn aðlaðandi áfangastaður fyrir væntanlega leikmenn. Við höldum okkar sterkustu leikmönnum á okkar sérstöku langtímasamningum. Heyrst hefur að Real Madrid horfi til Enzo Fernandez. Enzo er samningsbundinn til 2032. Við brosum í kampinn. Florentino Perez, forseta Real Madrid mun sennilega ekki endast ævina þegar Enzo verður til viðtals með samningamál. Þeir geta því ekkert gert nema komið með eitthvað ósiðlegt tilboð, en það telst harla ólíklegt á þessari stundu.

Moises Caicedo, leikmaður ársins hjá leikmönnum og stuðningsmönnum Chelsea á von á launahækkun og nýrri uppfærslu á launasamningi eftir afrek tímabilsins. Þetta var gert við Cole Palmer í fyrra og teljum við þetta mjög jákvætt fordæmi, að menn uppskeri eftir því sem þeir sái yfir tímabilið. Raunar er líklegt að margir hækka í launaþrepum við það að klúbburinn komst í Meistaradeildina. Árangur áfram, ekkert stopp. Nokkrir leikmenn eru sýnilega á útleið og það er núþegar búið að binda um hnútana hjá Bashir Humphreys. Hann var á láni hjá Burnley þetta tímabilið og virðist það vera ein 14 milljón punda vistaskipti. Hann er þegar búinn að kveðja samstarfsmenn og stuðningsmenn á Instagram. Það verður þó nóg að gera hjá félögunum Paul Winstanley og Laurance Stewart í leikmannamiðlunum. Það blasir við að Christopher Nkunku sé að fara frá klúbbnum. Hann hefur ekki náð að standast væntingar og er sífellt meiddur. Leikmenn sem hafa verið á láni eins og Kepa Arrizabalaga, Axel Disasi, Ben Chilwell, Carney Chukwuemeka, og Raheem Sterling virðast allir vera á útleið, bara spurning hvernig þeirra mál verði leyst. Joao Felix átti ekki góða lánsdvöl hjá AC Milan og mun sennilegast enda aftur í Chelsea, eða verða seldur eða lánaður aftur. Sannkallaður ómagi. Það sama verður að segja um Armando Broja, sem var heilt tímabil hjá Everton án þess að skora eitt einasta mark. Það er dapurlegt, en meiðslin á hásin fyrir nokkrum árum virðast hafa eyðilagt ferillinn hans. Chelsea var að búast við 30 milljónum punda, en miðað við frammistöður tímabilsins er það í besta falli algjör óskhyggja. Leikmenn sem eru hjá Strasbourg eins og Andrey Santos og Djordje Petrovic varpa áleitnum spurningum á Chelsea. Það er ljóst að Santos verði með Chelsea í FIFA mótinu í sumar, en hvað stjórnin geri með Petrovic er alls óljóst. Það er nokkuð ljóst að mikil eftirspurn verður líklega eftir serbneska markverðinum og það verður því tækifær til að selja leikmanninn fyrir mikinn hagnað. Lesley Ugochukwu var á láni hjá Southampton og átti skelfilegt tímabil með liðinu. Hann þarf annað tækifæri hjá öðrum klúbbi, líklega á láni. Það er því ljóst að mikil velta verður úr leikmannahópnum, en það sem við vitum leikmenn sem koma inn, þá vitum við að klúbburinn er að leita eftir vinstri kantmanni og framherja, eða jafnvel framherjum? Fabrizio Romano, sá geðþekki blaðasnápur, tilkynnti að Chelsea hefðu verið í sambandi við Liam Delap, framherja Ipswich. Þar sem Delap var með fallklásúlu uppá 30 milljóna söluverð frá Ipswich, þá eru margir klúbbar að presentera sína nálgun. Manchester United og Everton eru þar fremstu keppinautar, og einnig má búast við Newcastle. Enn heyrist lítið um hvað verður um Victor Osimhen. Það er staðföst trú ristjórnar CFC að hann verði aðalframherji Chelsea á komandi tímabili en kvabb um launagreiðslur og útfærslur situr í mönnum. Við fáum ekki nánari skýringar fyrr en úrslitaleik Sambandsdeildarinnar ljúki. Kæru félagar grípið bláu treyjurnar, kælið bjórinn og undirbúið ykkur fyrir dramatískan dag í Wroclaw. Chelsea stendur á barmi sögunnar í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar 2025 gegn Real Betis, þar sem bláliðar geta orðið fyrsta liðið til að vinna allar fimm helstu evrópukeppnir hjá UEFA. En þetta verður enginn göngutúr í garðinum. Betis, undir stjórn hins þaulreynda Manuel Pellegrini kemur með eld í hjartað og Anthony sem dansar á vængnum. Það er komið að lokauppgjöri. Ekki úrslitaleik – heldur hreinræktað sakramenti. Á miðvikudagskvöld mætast Chelsea og Real Betis á hinum prýðilega vettvangi Tarcynsky Arena. Þar verður ekki bara tekist á um einhvern þriðja evrópubikar – heldur sáluhjálp, réttlætingu og, í tilfelli Chelsea, möguleikann á að gera tímabilið fráleitlega merkilegt í stað merkilega fráleits. Við skulum byrja á því að minna okkur á eitt: Sambandsdeildin er ekki skammarverðlaun. Hún er bikar. Hún er sigur. Hún er evrópskt kvöld, stjörnubjart og spennuþrungið, þar sem menn verða að vaxa andspænis háska – eða sökkva ofan í lambhúshettuna af meðalmennsku.

Real Betis, þetta andalúsíska listaverk, hefur farið lúmskt rólega í gegnum keppnina. Þetta lið getur dansað flamenco á línunni og slegið þig með flugbeinu utanfótarskoti frá Isco – sem hefur endurholdgast á þessu tímabili og líkist nú aftur leikmanni sem maður vill ekki sjá með boltann fyrir utan teig. Þetta lið hefur reynst erfiður ljár í þúfu fyrir lið eins og Barcelona og Real Madrid í La Liga.
Kostir þeirra:
- Reynsla: Isco, Adrian, Marc Bartra, Giovanni Lo Celso, Pablo Fornals, Ricardo Rodríguez, Anthony – menn sem vita hvernig á að stjórna tempói.
- Stöðugleiki: Þeir halda boltanum eins og það sé arfur frá afa gamla.
- Miðja sem spilar eins og hún sé að mála vatnslitamynd – mikið flæði, engin geðshræring.
Gallar þeirra:
- Bakverðir sem halda að þeir séu kantmenn – við þökkum fyrir rýmið.
- Tregir varnarlega þegar á reynir – sérstaklega ef þeir tapa fyrstu tveimur návígjunum.
Chelsea hefur farið þessa ferð með blendnar tilfinningar. Við höfum séð afburða sóknarleiki og fullkomna geðklofa í vörninni samanber seinni leikinn gegn Lech Poznan. En síðustu vikur benda til þess að eitthvað hafi kviknað – lítið logandi sprittkertaljós sem gæti orðið að brennandi loga ef menn trúa. Þetta er stóra prófið fyrir Enzo Maresca. Hann þarf að sýna okkur aðdáendum að hann sé snjall einstaklingur þegar virkilega á reynir. Hópurinn er klár. Fyrir utan meiðsli Fofana, þá er Romeo Lavia víst ekki gjaldgengur í hópinn útaf einhverjum skráningarmálum eftir því sem CFC kemst best að. Byrjunarliðið á að vera það sterkasta sem klúbburinn hefur upp á að bjóða. Ef það á að búa til sigurhefð, þá viljum við ekki sjá menn eins og Jörgensen, Badiashile eða Dewsbury-Hall í byrjunarliðinu eins og það sé einhver góðgerðarstarfsemi fyrir leikmenn sem þurfa mínútur. Úrslitaleikir eru mikilvægir og þeir slá tóninn fyrir framtíðina. Undir þeim kringumstæðum teljum við að byrjunarliðið hjá Chelsea verði Sanchez í markinu, Cucurella í vinstri bakverði, Chalobah og Colwill í miðvörðum og Reece James í hægri bakverði. Við þurfum fyrirliðann á vellinum alveg frá byrjun, annað er rugl. Á miðjunni verða svo Caicedo, Enzo og Cole Palmer. Á vinstri kanti er líklegt að Jadon Sancho og hægri kantinum Noni Madueke. Nico Jackson snýr aftur í framherja stöðuna eftir að hafa tekið leikbann í Ensku Úrvalsdeildinni. Hjá Real Betis verður liðið sennilega í 4-2-3-1 með fyrrverandi Liverpool markvörðinn Adrian á milli stanganna. Hinn svissneski Ricardo Rodriguez er í vinstri bakverði. Natan og Marc Bartra miðverðir, og Aitor Rubial í hægri bakverði. Pablo Fornals og Sergi Altamira verða á miðjunni og Isco í holunni. Anthony er auto á hægri kantinn, Jesus Rodriguez verður á þeim vinstri, með MLS hetjuna Juan Hernández upp á topp. Þetta verður magnþrunginn og spennandi leikur. Menn eiga eftir að naga neglurnar niður í kjúkur en við ætlum að gerast svo djarfir og spá 2-0 sigri fyrir Chelsea með mörkum frá Reece James og Cole Palmer úr vítaspyrnu. Við minnum svo á að Chelsea samfélagið á Íslandi ætlar að halda tvo viðburði og horfa saman á leikinn. Í Reykjavík verður hátíðin í Keiluhöllinni þar sem frír bjór er í boði þegar Chelsea skorar. Eftir leik verður svo pubquiz með Doktornum Hjörvari Hafliðasyni. Á sama tíma fyrir norðan ætla Chelsea aðdáendur á Norðurlandi að hittast á Verksmiðjunni á Glerártorgi, Akureyri. Þar stendur okkur aðdáendum til boða happy hour tilboð á Víking Lite ásamt 20% afslætti af matseðli. Píluspjöldin verða svo á staðnum fyrir þá sem vilja mæta örlítið fyrr en dagskrá segir til um. KOMA SVO CHELSEA! SIGLUM ÞESSARI DOLLU HEIM!
Birt með góðfúslegu leyfi cfc.is